Thursday, March 28, 2024
HomeErlentAlistair Overeem mætir Curtis Blaydes á UFC 225

Alistair Overeem mætir Curtis Blaydes á UFC 225

Alistair Overeem og Curtis Blaydes koma til með að mætast á UFC 225 en þetta staðfesti UFC á Twitter í gærkvöldi. Bardagakvöldið fer fram Í Chicago þann 9. júní næstkomandi.

Þessi bardagi bætist við þá tvo bardaga sem áður hafa verið tilkynntir en Cláudia Gadelha og Carla Esparza mætist í strávigt kvenna kvenna og í fluguvigtinni mætast Sergio Pettis og Joseph Benavidez. Það stefnir því allt í spennandi bardagakvöld í Chicago þann 9. júní.

Alistair Overeem var steinrotaður af Francis Ngannou á UFC 218 í desember í fyrra. Þar áður hafði hann unnið tvo bardaga í röð og nálægt titilbardaga. Overeem mætir nú upprennandi þungavigtarmanni en Overeem hefur einnig sagt að hann vilji annað tækifæri gegn Francis Ngannou.

Curtis Blaydes sigraði síðast Mark Hunt eftir dómaraákvörðun á UFC 221. Eftir bardagann óskaði hann eftir að fá að berjast á UFC 225 enda fer það fram í hans heimaborg, Chicago. Blaydes hefur unnið þrjá bardaga í röð og er ansi spennandi efni í þungavigtinni.

Guttormur Árni Ársælsson
Guttormur Árni Ársælsson
-Pistlahöfundur -Fjólublátt belti í BJJ -Lýsi UFC á Viaplay þegar Pétur hefur eitthvað merkilegra að gera
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular