Friday, April 19, 2024
HomeForsíðaBestu dómararnir í MMA - Ónefndu hetjurnar í hringnum

Bestu dómararnir í MMA – Ónefndu hetjurnar í hringnum

Í íþrótt þar sem bardaginn getur endað á sekúkndubroti eru hröð viðbrögð lykillinn að góðum dómara. Sumir hafa það sem þarf til en sumir ekki. Hér verður farið yfir þá sem taldir eru þeir bestu í faginu.

herb-dean-ufc-162Herb Dean hefur viðurnefnið „the darling“ dómaranna í MMA bransanum. Dana White, Ariel Helwani og margir aðrir hafa nefnt hann sem fyrirmynd dómara í bransanum. Hann er rólegur, yfirvegaður og virðist ávallt vera á réttum tíma og stað til að sjá hvað er að gerast. Hann heldur reglulega námskeið fyrir þá sem vilja byrja dæma í MMA og hjálpar þeim að fá leyfi til að dæma. Dean hefur öryggi keppenda ávallt í forgangi en gott dæmi um það var í bardaganum milli Frank Mir og Tim Sylvia. Mir náði Sylvia í “armbar” og braut hendina á Sylvia en Herb Dean stoppaði bardagann þegar hann sá hvað hefði gerst en Sylvia neitaði að hætta og mótmælti ákvörðuninni. Hér er gott dæmi um mikilvægi þess að hafa góðan dómara. Þar sem Dean passaði upp á líkamlegu heilsu Sylvia þrátt fyrir mótmæli hans.

Fyrir allt það góða sem Herb Dean hefur gert þá hefur hann legið undir gagnrýni upp á síðkastið, þá helst vegna tveggja ákvarðana í tveimur titilbördögum. Annars vegar í bardaga Renan Barao gegn Urijah Faber og hins vegar í bardaga Ronda Rousey gegn Sara McMann. Í bardaga Fabers og Barao telja margir hann hafa stoppað bardagann of snemma. Urijah Faber reyndi jafnvel að gefa Herb Dean merki um að allt væri í lagi með því að setja þumalinn upp. Því miður sá Dean ekki merkið frá Faber og endaði bardagann. Herb hefur viðurkennt að þetta voru mistök og hann hafi ekki verið rétt staðsettur til að sjá merki Fabers. Hins vegar í bardaganum hjá Ronda Rousey gegn Sara McMann varði Herb Dean ákvörðun sína. Herb Dean lýsti því að ólíkt Uriah Faber hefði McMann gripið utan um svæðið sem hún fékk áverka á og reyndi ekki að verja sig frá þeim höggum sem hún varð fyrir.

Big-John-McCarthyJohn McCarthy er algjör frumkvöðull í heimi dómara í MMA og er einn af reyndustu dómurum í íþróttinni. Hann hefur lengi barist fyrir breyttum reglugerðum og hæfniskröfum fyrir dómara. Hann hefur gagnrýnt formann íþróttanefndar Nevada fylkisins, Keith Keizer, oft og opinberlega en sú nefnd hefur hvað mestu áhrif á reglugerðir og ákvarðanir á ráðningu dómara í bardagaíþróttum í Bandaríkjunum. McCarthy hefur gagngrýnt Keizer fyrir að reka ekki vanhæfa dómara og telur Keizer ekki vita nógu mikið um bardagaíþróttir til að geta sinnt starfi sínu. Þetta bitnar svo á keppendum sem verða fyrir klóm vanhæfra dómara.

Jon Jones má þakka honum fyrir að vera með beltið sitt í dag. Í bardaga Jon Jones og Alexander Gustafsson vildi læknirinn sem athugaði meiðsli Jones stöðva bardagann í lok fjórðu lotu. John McCarthy náði  sem náði að sannfæra lækninn að leyfa honum að halda áfram í titilbardaganum gegn Gustafsson.

yveslavigneYves Lavigne er af fransk-kanadískum ættum og hefur verið að dæma bardaga síðan 1997. Lavigne er þekktur fyrir að gefa bardagamönnum hæfilegt tækifæri á því að jafna sig eftir þung högg í stað fyrir að dæma bardagann strax af en einnig veit hann hvar hin þunna lína liggur og hvenær á að stoppa bardagann til að verja keppandann frá meiri skaða.  Hann dæmdi sérstaklega vel í bardaganum Marcus Davis gegn Paul Taylor þar sem Davis var vankaður af sparki og tók á móti þungum höggum á jörðinni en var ennþá að verja sig. Lavigne stöðvðai ekki bardagann strax heldur gaf hann Davis tækifæri á því að jafna sig. Eftir að hafa veðrað storminn tókst Davis svo að sigra bardagann.

Þótt Lavigne eigi margar góðar ákvarðanir að baki er samt sem áður ein sem hlýtur enn að hrjá hann í svefni. Þegar Lavigne dæmdi bardagann á milli Matt Brown og Pete Sell. Brown hafði greinilega yfirhöndina í bardaganum og hafði náð Sell niður með höggum. Þrátt fyrir að lenda ótal höggum án þess að Sell gæti varið sig stoppaði Lavigne ekki bardagann. Brown mótmælti sjálfur með því að veifa höndunum í loftið meðan bardaginn var enn í gangi. Lavigne viðurkenndi í viðtali eftir bardagann að hann hefði látið Sell verða fyrir óþarfa skaða og að hann hefði átt að stoppa bardagann mikið fyrr.

Mario+YamasakiMario Yamasaki er brasilískur dómari sem hefur ávallt haft áhuga á bardagaíþróttum og hefur hann æft jiu-jitsu í mörg ár. Yamasaki hóf feril sinn hjá UFC eftir að hann og bróðir hans hjálpuðu samtökunum að halda sinn fyrsta viðburð í Brasilíu. Yamasaki er áreiðanlegur og sanngjarn dómari en einnig er hann óhræddur að segja sína skoðun og eftir að hafa dæmt bardaga Georges St. Pierre gegn Johny Hendricks gagnrýndi hann ákvörðun borðdómaranna harkalega. Yamasaki taldi Hendricks hafa unnið allar lotur nema þá seinustu. Eftir bardagann gagnrýndi hann íþróttanefnd Nevada fylkisins og Keith Kizer og vildi fá einsleitna reglugerðir um hvernig bardaginn er dæmdur og fyrir hvað er gefið stig. Yamasaki vill að sett verði saman eitt námskeið sem allir borðdómarar þurfa að klára og með því útiloka þá ósamræmi sem á sér stað í stigagjöfum í MMA bardögum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular