Thursday, April 25, 2024
HomeForsíðaBjarki Ómarsson fær nýjan andstæðing og fær sinn fyrsta atvinnubardaga

Bjarki Ómarsson fær nýjan andstæðing og fær sinn fyrsta atvinnubardaga

Bjarki Ómarsson er kominn með nýjan andstæðing á FightStar 13 bardagakvöldinu þann 9. desember. Fimm Íslendingar berjast á bardagakvöldinu.

Bjarki Ómarsson átti upphaflega að mæta Nathan Jessimer (6-2) í áhugamannabardaga. Jessimer hefur hins vegar dregið sig úr bardaganum þar sem hann fékk ekki frí úr vinnu! Leit hófst þá að nýjum andstæðingi og er hann fundinn.

Bjarki Ómarsson (7-4 sem áhugamaður, 0-0 sem atvinnumaður) mun þess í stað mæta Mehmosh Raza (4-1). Bjarki hefur ekkert barist síðan í júlí 2016 en hann hefur átt við meiðsli að stríða og átt í erfiðleikum með að fá andstæðinga. Hann hefur núna tekið skrefið í atvinnumennskuna og verður spennandi að fylgjast með honum þann 9. desember.

Þrír Bjarkar berjast á kvöldinu þar sem Bjarki Þór Pálsson verður í aðalbardaga kvöldsins og þá berst Bjarki Pétursson sinn þriðja áhugamannabardaga. Ingþór Örn Valdimarsson mun berjast atvinnubardaga sömuleiðis og þá er Bjartur Guðlaugsson kominn með bardaga á kvöldinu.

FightStar 13 fer fram þann 9. desember í London.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular