Friday, April 19, 2024
HomeErlentCain Velasquez fer í sína áttundu aðgerð eftir UFC 207

Cain Velasquez fer í sína áttundu aðgerð eftir UFC 207

Cain Velasquez mætir Fabricio Werdum á UFC 207 þann 30. desember. Þrátt fyrir að hann sé að berjast eftir níu daga getur hann varla staðið í lappirnar fyrir verkjum.

Cain Velasquez er nú þegar bókaður í aðgerð á baki eftir bardagann. Cain á erfitt með að standa uppréttur í meira en 10 mínútur vegna sársauka í hægri fæti. Sársaukanum veldur beinnabbi sem þrýstir á taug í mjöðminni. Cain þurfti að hætta við fyrirhugaðan bardaga gegn Werdum í febrúar á þessu ári vegna svipaðra vandamála.

Cain hefur margoft þurft að hætta við bardaga vegna meiðsla og kom það til tals að hætta við í þetta sinn. Cain er þó hungraður í hefnd gegn Werdum og fann aðra lausn – Cannabidiol (CBD).

Efnið finnst í kannabis plöntunni og notar Cain munnsprey þegar sársaukinn er til staðar. „Ég veit ekki hvað öllum á eftir að finnast um þetta. Þetta [sársaukinn] er bara eitt af því sem við bardagamenn þurfum að ganga í gegnum. NFL leikmenn hafa orðið háðir verkjalyfjum en ég vil ekki verða einhver fíkill,“ segir Cain við ESPN.

CBD er ekki á bannlista UFC utan keppnis og ætlar Cain að nota munnspreyið þar til á morgun eða viku fyrir bardagann. Þá stefnir hann á að fá kortísón sprautu til að minnka sársaukann.

Cain getur æft að vild eins og er en mun fara í sína áttundu aðgerð þann 4. janúar til að skafa af beinanganum til að koma í veg fyrir sársaukann.

UFC 207 fer fram þann 30. desember og mun sigurvegarinn úr viðureign Cain Velasquez og Fabricio Werdum líklegast fá næsta titilbardaga í þungavigtinni.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular