Wednesday, April 24, 2024
HomeErlentCro Cop féll á lyfjaprófi

Cro Cop féll á lyfjaprófi

crocopMirko ‘Cro Cop’ Filipovic greindi frá því í vikunni að hann væri hættur. Í tilkynningu frá UFC í gær kom fram að króatíska goðsögnin hefði fallið á lyfjaprófi.

UFC tók upp nýja lyfjastefnu í júlí í samstarfi við USADA og er Cro Cop sá fyrsti til að falla á lyfjaprófi síðan stefnan tók gildi. Ekki kemur fram hvaða efni fundust í lyfjaprófi hans en ljóst er að hann mun fá keppnisbann þó hann sé hættur.

Á þriðjudaginn tilkynnti hann á opinberri Facebook síðu sinni að hann myndi ekki mæta Anthony Hamilton síðar í mánuðinum vegna meiðsla. Í tilkynningunni ýjaði hann einnig að því að hann væri hættur vegna þrálátra meiðsla. Í tilkynningunni sagðist Cro Cop kljást við axlarmeiðsli og þrátt fyrir að vera á „lyfjakokteil“ hefði ekkert virkað til að meðhöndla meiðslin. Mögulega hefur eitthvað ólöglegt verið í þessum lyfjakokteil.

Ekki er vitað hversu langt bann hann mun fá en USADA mun væntanlega senda frá sér tilkynningu á næstu dögum þar sem nánar verður greint frá lyfjamisferli hans.

Þetta er sorglegur endir á löngum og farsælum ferli hjá hinum króatíska Cro Cop.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular