Thursday, March 28, 2024
HomeForsíðaDagmar Hrund: Ógeðslega stressuð en samt spennt

Dagmar Hrund: Ógeðslega stressuð en samt spennt

Dagmar Hrund Sigurleifsdóttir keppir sinn fyrsta MMA bardaga á morgun þegar hún stígur í búrið á Evrópumótinu í Prag. Dagmar kveðst vera ógeðslega stressuð en er samt spennt fyrir fyrsta bardaganum.

Dagmar mætir Anette Österberg frá Finnlandi á morgun en bardaginn fer fram í fluguvigt (56,7 kg).

Þetta er ekki fyrsta Evrópumótið hjá Dagmari enda var hún einnig á mótinu í Birmingham í fyrra en þá sem nuddari liðsins. Nuddbekkurinn verður ekki með í ár og einbeitir Dagmar sér bara að keppninni.

Það er alltaf sérstök reynsla að keppa í MMA og þá sérstaklega í fyrsta sinn. Dagmar segir þetta vera mikinn tilfinningarússibana. „Ég er sjúklega peppuð fyrir þessu, þetta er emotional rollercoaster. Er ógeðslega stressuð en samt spennt. Þetta leggst bara vel í mig,“ segir Dagmar.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular