Thursday, March 28, 2024
HomeErlentEr klæðnaður Conor McGregor skírskotun til Biggie Smalls og Joe Frazier?

Er klæðnaður Conor McGregor skírskotun til Biggie Smalls og Joe Frazier?

Conor McGregor klæddist áhugaverðum pels á blaðamannafundinum í gær. Hefur klæðnaður hans í vikunni verið skírskotun til Biggie Smalls og Joe Frazier eða er þetta bara tilviljun?

Fyrr í vikunni klæddist Conor McGregor litríkri peysu sem minnti um margt á peysu sem rapparinn Biggie Smalls klæddist. Biggie Smalls, einnig kallaður The Notorious B.I.G., var fæddur og uppalinn í New York. ‘The Notorious’ Conor McGregor gengur auðvitað alltaf í búrið undir laginu Hypnotize með Biggie Smalls.

conor-mcgregor-coogi-sweater-rolex-watch-1-640x492 biggie-smalls

Á blaðamannafundinum í gær var Conor í hvítum pels og í rauðri rúllukragapeysu undir. Þetta er eiginlega of líkt fatnaði Joe Frazier til að vera tilviljun.

joe-frazier

Goðsögnin í boxinu mætti Muhammad Ali þrisvar og fór annar bardagi þeirra fram í Madison Square Garden í New York líkt og UFC 205. Frazier mætti í þessum hvíta pels í viðtali fyrir bardagann gegn Ali í New York árið 1974.

Pelsinn hjá Conor hefur sennilega verið keyptur skömmu fyrir blaðamannafundinn enda var verðmiðinn ennþá á pelsinum eins og sést hér.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular