Thursday, April 18, 2024
HomeForsíðaFenrir Open 2 fer fram 10. október

Fenrir Open 2 fer fram 10. október

Bardagaklúbburinn Fenrir á Akureyri mun halda glímumót þann 10. október á Akureyri. Keppt verður í galla (Gi) og geta öll félög sem eru hluti af BJJ sambandi Íslands eða Júdósambandi Íslands sent keppendur til leiks.

Keppt verður í bæði fullorðins- og unglingaflokkum á mótinu. Í fullorðinsflokkum verður keppt í fjórum þyngdarflokkum karla og þremur þyngdarflokkum kvenna. Í unglingaflokkum verða tveir þyngdarflokkar í drengjaflokki og tveir í stúlknaflokki (sjá þyngdarflokkana neðar).

Mótið fer fram í Hrafnagilsskóla og verður keppt á tveimur völlum. Vigtun fer fram föstudaginn 9. október milli 18-19 og er vigtað í galla en einnig er hægt að vigta sig inn á mótsdag. Keppnisgjald eru 1500 kr. Þetta er í annað sinn sem Fenrir Open fer fram en fyrsta mótið fór fram í júlí 2013.

Flest hefðbundin uppgjafartök eru leyfð en snúandi fótalásar eru bannaðir. Nánari upplýsingar um leyfð uppgjafartök má finna á viðburðinum hér.

Stigagjöfin verður með aðeins öðruvísi hætti en gengur og gerist á IBJJF mótum:

Stigagjöf:
3 stig: ­ Takedown í yfirburðarstöðu
3 stig: ­ Guard pass
3 stig: ­ Sweep/reversal í yfirburðarstöðu
2 stig: ­ Takedown sem endar ekki í yfirburðarstöðu
2 stig: ­ Sweep/reversal sem endar ekki í yfirburðarstöðu

Yfirburðarstaða er sidecontrol, mount, backmount eða north/south. Ekki eru gefin stig fyrir að ná mount eða backmount.

Eins og áður segir verður keppt í nokkrum þyngdarlokkum fullorðinna og unglinga en hér að neðan má sjá flokkana:

Þyndarflokkar:

Fullorðinsflokkar kvenna: +76 -76 ­-66
Fullorðinsflokkar karla: +95 ­-95 ­-85 ­-75
Stúlknaflokkar: +50 ­-50
Drengjaflokkar: ­+65 -65

Keppni hefst kl 10:30 en skráning á mótið skal berast á fenrir@fenrirmma.is eigi síðar en fimmtudaginn 8 október.

fenrir open 2

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular