Wednesday, April 24, 2024
HomeForsíðaGunnar Nelson fellur niður um tvö sæti á styrkleikalistanum

Gunnar Nelson fellur niður um tvö sæti á styrkleikalistanum

Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Styrkleikalisti UFC var uppfærður í gær og þar var okkar maður, Gunnar Nelson, í 14. sæti. Fyrir bardagann gegn Rick Story var Gunnar í 12. sæti og því fellur hann niður um tvö sæti.

UFC birtir styrkleikalista fyrir hvern þyngdarflokk og er Gunnar nú í 14. sæti á styrkleikalistanum í veltivigtinni. Listinn er settur saman af fjölmiðlafólki sem setja saman sinn lista yfir topp 15 keppendur í hverjum þyngdarflokki fyrir sig. Meistarinn í hverjum flokki er ekki á listanum heldur einfaldlega skráður sem meistari þannig að það má í raun segja að listinn samanstandi af topp 15 áskorendum í hverjum flokki.

Rick Story var ekki á topp 15 fyrir bardagann en er nú í 12. sæti listans eftir sigurinn á Gunnari. Hér má sjá hlekk á listann.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular