Friday, April 19, 2024
HomeForsíðaHM 2017: Björn Lúkas keppir í úrslitum í dag

HM 2017: Björn Lúkas keppir í úrslitum í dag

Lokadagur Heimsmeistaramóts áhugamanna í MMA fer fram í dag. Þar fara úrslitabardagarnir fram og keppir okkar maður um gullið í millivigt.

Björn Lúkas hefur hreinlega farið á kostum á mótinu og klárað alla fjóra bardaga sína í 1. lotu. Enginn af þeim sem er í úrslitunum í dag hefur leikið það eftir og hefur Björn Lúkas fengið nokkra athygli á mótinu.

Bardagarnir í dag hefjast kl 13 á íslenskum tíma og er bardagi Björns sá 11. í röðinni. Ómögulegt er að vita nákvæmlega hvenær Björn Lúkas keppir en reiknað er með að hann byrji í kringum 14:30.

Þetta eru þeir bardagar sem verða á dagskrá í dag en hægt er að horfa á þetta í beinni neðst í fréttinni.

*Uppfært*

Þetta tekur talsvert lengri tíma en reiknað var með. Þegar þetta er skrifað (kl 15:00) er bardagi nr. 4 í þann mund að hefjast. Það má reikna með að Björn sé ekki að fara að berjast fyrr en í allra fyrsta lagi kl 16, sennilega síðar.

  1. Strávigt kvenna: Hannah Dawson (Nýja-Sjáland) sigraði Anna Astvik (Svíþjóð)
  2. Fluguvigt: Serdar Altas (Svíþjóð) sigraði Yernaz Mussabek (Kasakstan)
  3. Fluguvigt kvenna: Michele Oliveira (Brasilía) sigraði Danni Neilan (Írland)
  4. Bantamvigt: Gamzat Magomedov (Barein) sigraði Olzhas Moldagaliyev (Kasakstan)
  5. Bantamvigt kvenna: Manon Fiorot (Frakkland) sigraði Chamia Chabbi (Finnland)
  6. Fjaðurvigt: Delyan Georgiev (Búlgaría) sigraði Joel Arolainen (Finnland)
  7. Fjaðurvigt kvenna: Fabiana Giampà (Ítalía) sigraði Courtney McCrudden (Norður-Írland)
  8. Léttvigt: Quitin Thomas (Bandaríkin) sigraði Vitali Andruhovich (Hvíta-Rússland)
  9. Léttvigt kvenna: Gase Sanita (Nýja-Sjáland) sigraði Kaycee Blake (Bretland)
  10. Veltivigt: Benjamin Bennett (Bandaríkin) sigraði Sola Axel (Frakkland)
  11. Millivigt: Khaled Laallam (Svíþjóð) sigraði Björn Lúkas Haraldsson (Ísland)
  12. Léttþungavigt: Pavel Pahomenko (Hvíta-Rússland) gegn Murtaza Talha Ali (Barein)
  13. Þungavigt: Irman Smajic (Svíþjóð) gegn Lev Vins (Kasakstan)
  14. Ofur þungavigt: Atanas Krastanov (Búlgaría) gegn Marcin Kalata (Pólland)

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular