Thursday, March 28, 2024
HomeForsíðaHM 2017: Björn Lúkas mætir Íra í næstu umferð

HM 2017: Björn Lúkas mætir Íra í næstu umferð

Björn Lúkas Haraldsson er kominn áfram í næstu umferð á Heimsmeistaramóti áhugamanna í MMA. Mótið fer fram um þessar mundir í Barein og fer næsta umferð fram í dag.

Björn Lúkas sigraði Spánverjann Ian Kuchler með armlás í 1. lotu í gær, mánudag. Hann kemur mjög heill úr bardaganum enda stóð bardaginn bara yfir í rúmar tvær mínútur. Næsta umferð fer fram í dag og þá mætir Björn hinum írska Fionn Healy-Magwa.

Healy-Magwa sigraði í gær Eliezer Kubanza frá Kongó eftir klofna dómaraákvörðun. Hann kemur því ekki eins vel frá deginum eins og Björn Lúkas eftir 12 mínútna langan bardaga.

Healy-Magwa æfir hjá SBG í Dublin og þykir ansi efnilegur bardagamaður. Eftir gærdaginn er hann 7-2 á áhugamannaferlinum á meðan Björn Lúkas er 3-0. Björn hefur klárað alla bardaga sína í 1. lotu og ætti þetta því að verða hörku bardagi.

Hér að neðan má sjá flokkinn hjá Birni Lúkasi.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular