Thursday, March 28, 2024
HomeErlentHvenær byrjar UFC 211?

Hvenær byrjar UFC 211?

UFC 211 fer fram í nótt í Dallas í Texas. Tveir titilbardagar verða á dagskrá en hvenær byrjar fjörið?

12 bardagar verða á dagskrá í kvöld og hefst fyrsti bardaginn kl 22:30 á Fight Pass rás UFC. Aðalhluti bardagakvöldsins hefst svo kl 2 og verður í beinni útsendingu á Fight Pass rás UFC. Eftirtaldir bardagar verða á dagskrá:

Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl 2 á Stöð 2 Sport)

Titilbardagi í þungavigt: Stipe Miocic gegn Junior dos Santos
Titilbardagi í strávigt kvenna: Joanna Jędrzejczyk gegn Jéssica Andrade
Veltivigt: Demian Maia gegn Jorge Masvidal
Fjaðurvigt: Frankie Edgar gegn Yair Rodríguez
Millivigt: Krzysztof Jotko gegn David Branch

FX upphitunarbardagar (hefjast á miðnætti)

Léttvigt: Eddie Alvarez gegn Dustin Poirier
Fjaðurvigt: Chas Skelly gegn Jason Knight
Þungavigt: Chase Sherman gegn Rashad Coulter
Léttvigt: Marco Polo Reyes gegn James Vick

UFC Fight Pass upphitunarbardagar (hefjast kl 22:30)

Strávigt kvenna: Jessica Aguilar gegn Cortney Casey
Fjaðurvigt: Gabriel Benítez gegn Enrique Barzola
Léttþungavigt: Joachim Christensen gegn Gadzhimurad Antigulov

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular