Friday, March 29, 2024
HomeErlentHvenær byrjar UFC Fight Night: Bisping vs. Gastelum?

Hvenær byrjar UFC Fight Night: Bisping vs. Gastelum?

Í fyrramálið á íslenskum tíma er UFC með bardagakvöld í Sjanghæ í Kína. Þeir Michael Bisping og Kelvin Gastelum mætast í aðalbardaga kvöldsins en hér má sjá hvenær bardagarnir byrja.

Bardagarnir byrja snemma hér á landi en fyrsti bardaginn hefst kl 8:45 á laugardagsmorgun. Aðalhluti bardagakvöldsins hefst svo kl 12 en allir bardagarnir verða aðgengilegir á Fight Pass rás UFC. Hér má sjá þá bardaga sem verða á dagskrá

Aðalhluti bardagakövldsins (hefst kl 12)

Millivigt: Michael Bisping gegn Kelvin Gastelum
Veltivigt: Li Jingliang gegn Zak Ottow
Fjaðurvigt: Wang Guan gegn Alex Caceres
Veltivigt: Muslim Salikhov gegn Alex Garcia

Upphitunarbardagar (hefjast kl 8:45)

Fjaðurvigt: Zabit Magomedsharipov gegn Sheymon Moraes
Veltivigt: Kenan Song gegn Bobby Nash
Strávigt kvenna: Kailin Curran gegn Yan Xiaonan
Bantamvigt: Yadong Song gegn Bharat Khandare
Þungavigt: Chase Sherman gegn Shamil Abdurakhimov
Bantamvigt kvenna: Yanan Wu gegn Gina Mazany
Hentivigt (148 pund): Wuliji Buren gegn Rolando Dy
Þungavigt: Cyril Asker gegn Yaozong Hu

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular