Fyrsta UFC kvöld ársins fer fram í Pheonix í kvöld þar sem B.J. Penn snýr aftur þegar hann mætir Yair Rodriguez í aðalbardaga kvöldsins. Hér má sjá hvenær bardagarnir byrja.
Það er ekki oft sem UFC er með bardaga á sunnudagskvöldi en sú er raunin í kvöld. Þetta tengist NFL leikjunum sem sýndir eru á Fox Sports í kvöld. Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl 11: 15 á íslenskum tíma en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl 3. Hér má sjá bardaga kvöldsins:
Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl 3)
Fjaðurvigt: Yair Rodríguez gegn B.J. Penn Léttvigt: Joe Lauzon gegn Marcin Held Veltivigt: Court McGee gegn Ben Saunders Fluguvigt: John Moraga gegn Sergio Pettis
Fox Sports 1 upphitunarbardagar (hefjast kl 1)
Bantamvigt: Frankie Saenz gegn Augusto Mendes Þungavigt: Oleksiy Oliynyk gegn Viktor Pešta Léttvigt: Alex White gegn Tony Martin Þungavigt: Walt Harris gegn Chase Sherman
Strávigt kvenna: Jocelyn Jones-Lybarger gegn Nina Ansaroff Léttvigt: Devin Powell gegn Drakkar Klose Léttþungavigt: Joachim Christensen gegn Bojan Mihajlović Þungavigt: Dmitri Smoliakov gegn Cyril Asker