Thursday, April 25, 2024
HomeErlentHversu lengi hafa núverandi meistarar haldið titlunum sínum?

Hversu lengi hafa núverandi meistarar haldið titlunum sínum?

Demetrious JohnsonÁrið 2016 hefur verið slæmt ár fyrir meistarana í UFC. Fáum hefur tekist að verja titlana sína og höfum við fengið sjö nýja meistara í UFC á þessu ári.

Með tilkomu allra þessara nýju meistara er gaman að skoða hverjir hafa haldið beltinu lengst. Þar er Demetrious Johnson langt á undan kollegum sínum og komast aðrir ekki með tærnar þar sem hann er með hælana.

Það má sjá ansi mörg núll í töflunni hér að neðan enda margir nýjir meistarar. Aðeins Robbie Lawler (varð hann gegn Carlos Condit í janúar), Demetrious Johnson, Dominick Cruz og Joanna Jedrzejczyk hafa varið titl sinn í ár.

Demetrious Johnson er sá sem haldið hefur sínum titli lengst í dag og er langt á undan næsta meistara, Joanna Jedrzejczyk, sem er með þrjár titilvarnir. Það er ekki annað hægt en að dást aðeins að afrekum Johnson þegar við sjáum þetta svona svart á hvítu. Er hann besti bardagamaður heims, pund fyrir pund, í dag?

Þyngdarflokkur Meistari Síðan? Titilvarnir
Þungavigt Stipe Miocic 14. maí 2016 0
Léttþungavigt Daniel Cormier 23. maí 2015 1
Léttþungavigt* Jon Jones 23. apríl 2016 0
Millivigt Michael Bisping 4. júní 2016 0
Veltivigt Tyron Woodley 30. júlí 2016 0
Léttvigt Eddie Alvarez 7. júlí 2016 0
Fjaðurvigt Conor McGregor 12. desember 2015 0
Fjaðurvigt** Jose Aldo 9. júlí 2016 0
Bantamvigt Dominick Cruz 17. janúar 2016 1
Fluguvigt Demetrious Johnson 22. september 2012 8
Bantamvigt kvenna Amanda Nunes 9. júlí 2016 0
Strávigt kvenna Joanna Jedrzejczyk 14. maí 2015 3

*Bráðabirgðarmeistari í léttþungavigt
**Bráðabirgðarmeistari í fjaðurvigt

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular