Friday, March 29, 2024
HomeErlentKen Shamrock í góðu formi fyrir bardagann gegn Kimbo Slice

Ken Shamrock í góðu formi fyrir bardagann gegn Kimbo Slice

Gömlu kempurnar Ken Shamrock og Kimbo Slice munu etja kappi á Bellator 138 þann 19. júní. Það er óhætt að segja að Ken Shamrock taki bardagann alvarlega enda virkar hann í mjög góðu formi.

Hinn 51 árs Shamrock hefur ekkert barist í fimm ár og leit allt út fyrir að hann væri hættur. Þegar verst lét barðist hann í vafasamum bardagasamtökum og hafði engan áhuga á íþróttinni lengur. Hann var blankur og var þetta eina tekjulind hans.

Nú er öldin önnur. Fyrir bardagann gegn Kimbo Slice hefur hann verið duglegur að æfa og sennilega verið duglegur að taka vítamínið sitt ef marka má nýjustu myndina af honum. Shamrock féll á lyfjaprófi árið 2009.

Báðir bardagamenn eru komnir yfir sitt léttasta skeið en Slice er 41 árs. Bardaginn er aðalbardagi kvöldsins.

ken shamrock
Ken Shamrock í hörku formi.
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular