Friday, March 29, 2024
HomeErlentKhabib við fína heilsu - vonast eftir titilbardaga í haust

Khabib við fína heilsu – vonast eftir titilbardaga í haust

Khabib NurmagomedovKhabib Nurmagomedov er við góða heilsu eftir misheppnaðan niðurskurð fyrir UFC 209. Hann býst þó ekki við að berjast fyrr en í ágúst eða september.

Khabib Nurmagomedov átti að mæta Tony Ferguson á UFC 209 í mars. Rúmum sólarhringi fyrir bardagann þurfti Khabib að draga sig úr bardaganum vegna erfiðleika í kringum niðurskurðinn. Khabib þurfti að fara upp á spítala nóttina fyrir vigtunina og var sagður ófær um að keppa af læknum.

Þetta er í þriðja sinn sem bardagi Khabib og Ferguson fellur niður og óvíst hvort UFC muni reyna enn einu sinni að setja saman bardaga þeirra á milli.

Khabib er þó ekkert á leiðinni í búrið á næstunni þó hann sé við góða heilsu. Khabib er strangtrúaður múslimi og hefst Ramadan í maí. Þá mun Khabib fasta í mánuð og mun því ekki geta æft eða undirbúið sig undir bardaga á þeim tíma.

Hann vonast þó eftir að fá titilbardaga í ágúst eða september en óvíst er hvort honum verði að ósk sinni eftir klúðrið á UFC 209.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular