Wednesday, April 24, 2024
HomeForsíðaKolli keppir kl 16:30 í dag

Kolli keppir kl 16:30 í dag

gunnar kolli
Mynd: Af Facebook síður Gunnars Kolbeins

Gunnar Kolbeinn Kristinsson, eða Kolli eins og hann er oftast kallaður, keppir sinn fimmta atvinnumannabardaga í boxi í dag. Bardaginn fer fram í Finnlandi og er áætlað að hann byrji kl 16:30 á íslenskum tíma.

Kolli (4-0) mætir Litháanum Pavlo Nechyporenko í dag en bardaginn fer fram á stóru bardagakvöldi í Finnlandi. Búist er við um 12.000 manns í höllina í dag enda mun heimamaðurinn Robert Helenius berjast um WBC Silver Title gegn Johann Duhaupas í aðalbardaga kvöldsins.

Sjá einnig – Kolbeinn: Toppurinn er ekki bara fjarlægur draumur

Kolli hefur æft með Robert Helenius undanfarnar vikur í Finnlandi og ætti því að koma afar sterkur til leiks. Áhugasamir geta séð bardagann hér en áhorfið kostar 9,90 evrur. Kolli er þriðji bardagi kvöldsins og hefst kl 16:30 eins og áður hefur komið fram.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular