Thursday, March 28, 2024
HomeForsíðaLeiðin að búrinu: Bjarki Ómarsson vs. Mehmosh Raza

Leiðin að búrinu: Bjarki Ómarsson vs. Mehmosh Raza

Bjarki Ómarsson berst sinn fyrsta atvinnubardaga nú á laugardaginn. Bjarki mætir þá Mehmosh Raza (4-1) í fjaðurvigt en bardaginn fer fram á FightStar bardagakvöldinu í London.

Bjarki Ómarsson (7-4 sem áhugamaður) hefur ákveðið að taka skrefið í atvinnumennskuna. Bjarki hefur ekki barist síðan í júlí 2016 en hefur glímt við meiðsli og átt í erfiðleikum með að fá andstæðinga undanfarna mánuði.

Núna er hann loksins kominn með bardaga en í Leiðinni að búrinu segir hann frá biðinni eftir bardaga, bætingum sínum og hvers vegna hann tekur skrefið í atvinnumennskuna núna.

Fjórir Íslendingar berjast á FightStar 13 bardagakvöldinu á laugardaginn en þar af eru þrír atvinnubardagar. Bjarki Þór Pálsson er í aðalbardaga kvöldsins en hann mætir Stephen O’Keeffe um léttvigtarbelti FightStar. Ingþór Örn Valdimarsson berst á kvöldinu en hann mætir Dawid Panfill í atvinnubardaga. Bjartur Guðlaugsson mætir Rúmenanum Dario Drotar í áhugamannabardaga í fjaðurvigt. Bjarki Pétursson átti að keppa á kvöldinu en bardagi hans féll niður.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular