Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir bardaga Gunnars Nelson gegn Alan Jouban. Bardaginn fer fram þann 18. mars í London og er næstsíðasti bardagi kvöldsins.
UFC birti í morgun smá æfingadagbók Alan Jouban. Jouban tók myndbrotin upp sjálfur og sendi á UFC sem klippti þetta til og birti.
Í myndbandinu má m.a. sjá Jouban æfa með Chinzo Machida, yngri bróðir Lyoto Machida sem er fyrrum léttþungavigtarmeistari UFC, en þeir bræður eru þekktir fyrir öflugan karate stíl í MMA.