Tuesday, March 19, 2024
HomeErlentMyndband: Geggjað snúnings hælspark í lifrina

Myndband: Geggjað snúnings hælspark í lifrina

Sparkboxkeppnin Glory of Heroes 6 fer fram um þessar mundir í Kína. Mögnuð tilþrif litu dagsins ljós fyrr í dag þegar Qui Jianliang kláraði bardagann sinn með frábæru sparki.

Qui Jianliang mætti Kem Sitsongpeenong í fjaðurvigt. Þetta var fyrsti bardagi Jianliang á árinu en hann vann 9 af 10 bardögum sínum í fyrra.

Jianliang kláraði bardagann með þessu snúnings hælsparki beint í lifrinu í 1. lotu. Sitsongpeenong lá óvígur eftir sparkið og stöðvaði dómarinn bardagann. Jianliang fagnaði vel og innilega þegar ljóst var að bardaganum væri lokið.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular