Saturday, April 20, 2024
HomeErlentMyndband: Ronda Rousey hjá Jimmy Fallon

Myndband: Ronda Rousey hjá Jimmy Fallon

Það er mikið um að vera hjá Rondu Rousey þessa dagana. Hún var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon á dögunum og þá mun hún vera gestastjórnandi SportsCenter á ESPN í kvöld.

Ronda Rousey mætir Holly Holm á UFC 193 í næsta mánuði. Í þættinum hjá Jimmy Fallon sagði hún Holm vera sína stærstu ógn hingað til.

Hún talaði einnig um Floyd Mayweather og ummælin sem hún lét flakka á ESPY verðlaununum í sumar.

Eins og áður segir mun Rousey vera gestastjórnandi þáttarins SportsCenter á ESPN. Hún verður þar með fyrsta íþróttakonan sem stýrir þættinum en það þykir afar merkilegt í Bandaríkjunum. SportsCenter er vinsælasti íþróttaþáttur Bandaríkjanna en þátturinn með Rousey bak við borðið fer í loftið í kvöld í Bandaríkjunum.

UFC 193 fer fram 15. nóvember í Melbourne í Ástralíu.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular