Friday, March 29, 2024
HomeErlentMyndband: Svæfði andstæðinginn en tapaði

Myndband: Svæfði andstæðinginn en tapaði

Ansi sérstök uppákoma sást í Invicta FC í nótt. Celine Haga svæfði Amy Montenegro en tapaði samt eftir dómaraákvörðun.

Bardaginn fór fram í strávigt kvenna á Invicta 21 í Kansas í nótt. Í lok 3. lotu nær Haga að læsa hengingu og þegar bardaginn kláraðist var Montenegro meðvitundarlaus.

Í stað þess að úrskurða Haga sigurvegara bardagans ákvað dómarinn Greg Franklin að senda bardagann í dómaraúrskurð. Þar var Montenegro dæmd sigur 29-28 hjá öllum þremur dómurunum.

Dómarinn reynslumikli John McCarthy sagði í samtali við MMA Figthing að samkvæmt reglunum hefði Haga átt að vinna eftir uppgjafartak. Ef lotan eða bardaginn klárast þar sem annar bardagamaðurinn er meðvitundarlaus eftir uppgjafartak skal sá sem var með uppgjafartakið vera úrskurðaður sigurvegari.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular