Friday, March 29, 2024
HomeErlentMyndband: Urijah Faber og Dominick Cruz rífast enn einu sinni

Myndband: Urijah Faber og Dominick Cruz rífast enn einu sinni

Urijah Faber og Dominick Cruz mætast á UFC 199 þann 4. júní. Þeir eru nú á kynningartúr fyrir bardagakvöldið og rifust enn einu sinni í útvarpsþætti á dögunum.

Bantamvigtarmeistarinn Dominick Cruz vann beltið sitt til baka með sigri á T.J. Dillashaw í janúar. Dillashaw er fyrrum æfingafélagi Urijah Faber en rígurinn á milli Cruz og Faber nær mörg ár aftur.

Þeir Cruz og Dillashaw mætast í næstsíðasta bardaga kvöldsins á UFC 199.

Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Luke Rockhold og Chris Weidman um millivigtartitilinn. Þeir voru öllu rólegri í viðtali í gær á The Sportscenter þó einhver rígur sé á milli þeirra.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular