Það verður erfitt að koma Nate Diaz aftur í búrið. Nate var boðið að berjast við fyrrum léttvigtarmeistarann Eddie Alvarez en virðist ekki hafa verið spenntur fyrir því.
Forseti UFC, Dana White, sagði í viðtali nýlega að UFC hefði boðið Nate Diaz bardaga á dögunum og væri að bíða eftir svari frá honum. Samkvæmt Ariel Helwani var Nate boðið að berjast við Eddie Alvarez
Það er því ólíklegt að Nate Diaz sé á leið í búrið á næstunni en hann kvartaði nýlega yfir því að UFC hefði sett hann í frystikistuna. Nate hefur áður sagt að hann vilji ekki berjast nema það sé gegn Conor McGregor en það er hreinlega ekki í boði þessa stundina.
Í fyrrgreindu viðtali talaði White um að það sé erfiðast að koma Diaz bræðrunum í búrið en hann bauð nýlega Nick Diaz tvo bardaga sem hann hafnaði.