UFC heldur fremur lítið bardagakvöld í Ástralíu í nótt. Aðalbardaginn er mjög áhugaverður og leynast þarna fáeinir áhugaverðir bardagar einnig. Hér eru nokkrar ástæður til að horfa á UFC í kvöld.
Ferskur blær í millivigtinni: Fyrir utan topp fimm bestu gæjana í millivigtinni er fátt um fína drætti í þyngdarflokknum og flestir á seinni hluta ferilsins. Robert Whittaker og Derek Brunson hafa verið á góðu skriði að undanförnu og mætast í aðalbardaga kvöldsins. Báðir hafa þeir unnið fimm bardaga í röð en sigurvegarinn í kvöld verður kominn einu skrefi nær toppbardagamönnunum í millivigtinni. Það er því mikið undir fyrir báða og ætti að verða frábær bardagi.
Getur Omari Akhmedov bjargað sér fyrir horn? Rússinn Omari Akhmedov, sem Gunnar Nelson sigraði árið 2014, hefur nú tapað tveimur bardögum í röð í UFC og þarf nauðsynlega að sigra í kvöld. Akhmedov mætir heimamanninum Kyle Noke en hvorugur er þekktur fyrir að vera í leiðinlegum bardögum.
Ekki gleyma: Eins og sést er þetta ekki besta bardagakvöld allra tíma en auk fyrrgreindra bardaga mælum við með að fylgjast með bardaga Ben Nguyen og Geane Herrera í fluguvigtinni og þá er alltaf gaman að sjá hinn 22 ára Jake Matthews. Allir bardagar Nguyen í UFC hafa verið mjög skemmtilegir en Nguyen vakti athygli á sínum tíma er gamall bardagi með honum dreifðist víða.
Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl 23:30 en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl 3. Alla bardagana má sjá á Fight Pass rás UFC.