Samkvæmt nýjasta lista Forbes tímaritsins er Ronda Rousey 8. tekjuhæsta íþróttakona heims. Sjö tennisspilarar skipa listann en samkvæmt listanum fékk Ronda Rousey 6,5 milljónir dollara í tekjur á síðustu 12 mánuðum.
Listinn er reiknaður frá júní 2014 til júní 2015. Ronda Rousey barðist tvisvar á þessu tímabili (Alexis Davis og Cat Zingano), lék í þremur kvikmyndum, gaf út ævisögu sína og var á forsíðu Sports Illustrated. Í upphæðinni er einnig reiknað með styrktarsamningum en Rousey er með styrktarsamninga við Reebok, Metro PCS, Monster heyrnartól, Buffalo David Bitton og Carl’s Jr.
Rousey hefur fljótt orðið stærsta stjarnan í MMA. Talið er að milljón heimili hafi keypt UFC 190 (þar sem hún sigraði Bethe Correia) og gæti því Rousey haft enn hærri tekjur á næsta lista. Þegar meistarar berjast á svo kölluðum „pay per view“ kvöldum fá meistarar prósentu af sölunni nái hún yfir ákveðinn þröskuld. Það gefur vel í aðra hönd og er talið að það sé stór hluti af tekjum þessa stærstu stjarna í UFC.