Saturday, April 20, 2024
HomeErlentRonda Rousey ætlaði að halda áfram eftir rothöggið

Ronda Rousey ætlaði að halda áfram eftir rothöggið

ronda-rouseyRonda Rousey var rotuð af Holly Holm á UFC 193 á laugardaginn. Rousey var auðvitað ringluð eftir höggið en ætlaði að halda áfram.

Þessu komst notandi á Reddit að þegar hann hlustaði á hljóðupptökur af horninu hennar Rousey. Á upptökunni mátti heyra Rousey vankaða og átti hún erfitt með að meðtaka hvað gerðist. Hún hélt því stöðugt fram að hún hefði ekki rotast og hún hafi verið í lagi. Rousey neitaði að setjast á stólinn eftir tilsögn læknanna þar sem hún ætlaði að halda áfram.

Áhorfendur sem kaupa bardagakvöldið á Fight Pass rás UFC geta horft á bardagana með hljóðupptökum úr hornum bardagamanna. Þegar hlustað er á horn Rousey kom margt annað áhugavert í ljós.

Enn á ný er Edmon Tarverdyan gagnrýndur fyrir ráð sín. Á upptökunum heyrist lítið frá honum nema þegar hann hrópar „agi“ og „haltu höndunum uppi“. Í hvert sinn sem Rousey var í vandræðum heyrðist ekkert frá honum.

Herb Dean var dómarinn í bardaganum og má heyra hann segja Tarverdyan að tala við Rousey. „Talaðu við hana, vertu hreinskilinn,“ sagði Herb Dean við Tarverdyan.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular