Thursday, March 28, 2024
HomeErlentSpámaður helgarinnar: Andrés Þór Björnsson (UFC 192)

Spámaður helgarinnar: Andrés Þór Björnsson (UFC 192)

andrés
Mynd: Örn Arnar Jónsson.

Spámaður helgarinnar að þessu sinni er Andrés Þór Björnsson. Andrés er einn af eigendum Brooklyn Bar veitingastaðarins og er blátt belti í brasilísku jiu-jitsu. Hann er mikill UFC áhugamaður og birtir hér sína spá fyrir UFC 192.

Bantamvigt kvenna: Jessica Eye gegn Julianna Pena

Jessica Eye klárar þennan bardaga í fyrstu lotu með TKO. Með klárlega betra striking og meiri reynslu í UFC.

Þungavigt: Shawn Jordan gegn Ruslan Magomedov

Alvöru sleggjur hér á ferð og getur farið á báða vegu en ég held samt að Magomedov nái að rota Jordan í 2. lotu. Held að Jordan verði búinn að gasa út og reyni að taka hann niður í 2. lotu. Við það opnast tækifærið fyrir Magomedov sem rotar hann.

Léttþungavigt: Ryan Bader gegn Rashad Evans

Báðir eru með mjög svipaðan stíl en ég held að tími Evans sé búinn. Tankurinn á Evans klárast eftir fyrstu lotu og Bader tekur hann hægt og bítandi, nær að hlaða inn höggum og fellum. Hann nær þó ekki að klára hann og bardaginn endar í dómaraákvörðun fyrir Bader.

Veltivigt: Johny Hendricks gegn Tyron Woodley

Þetta verður svaðalegur bardagi sem mun ekki standa lengi. Ótrúlegt en satt þá mun Woodley klára þetta með stæl í 2. lotu með TKO. Held að powerið og hraðinn í Woodley sé of mikill fyrir Hendricks. Woodley er maðurinn sem Gunni mun þurfa að kljást við einn daginn um beltið 😉

Titilbardagi í léttþungavigt: Daniel Cormier gegn Alexander Gustafsson

Held að Cormier mun eiga í vandræðum með hæðina á Gustafsson. Bardaginn mun vera fram og aftur og báðir að hala inn stigum, en cardioið er betra hjá Svíanum. Cormier mun taka hann niður en Gustafsson mun ná submission á sveittum og þreyttum Cormier. Beltið endar í Svíþjóð.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular