Friday, March 29, 2024
HomeErlentTyron Woodley og Stephen Thompson mætast aftur á UFC 209

Tyron Woodley og Stephen Thompson mætast aftur á UFC 209

Tyron Woodley hefur staðfest að hann muni mæta Stephen Thompson aftur á UFC 209 í mars. Beðið hefur verið eftir endurati þeirra síðan þeir háðu jafntefli á UFC 205 í nóvember.

Veltivigtarmeistarinn Woodley varði beltið sitt í fyrsta sinn í nóvember gegn Thompson. Bardaginn var gríðarlega skemmtilegur og var Woodley nálægt því að klára Thompson í 4. lotu en karatestrákurinn þraukaði. Tveir dómarar dæmdu bardagann jafntefli á meðan sá þriðji skoraði bardagann fyrir Woodley.

Kapparnir hafa átt í orðaskiptum á samfélagsmiðlum undanfarna daga þar sem Woodley virtist vera að eltast við aðra bardaga eins og gegn Michael Bisping. Thompson póstaði á sunnudaginn mynd af samningnum sínum fyrir bardagann gegn Woodley þar sem hann skoraði á Woodley að skrifa undir sama samning. Í gær spurði Woodley svo Demian Maia hvað hann væri að gera 4. mars.

Maia hefði auðvitað tekið bardagann strax en að lokum hefur Woodley samþykkt bardagann við Thompson enda hefur bardaginn einnig verið staðfestur af UFC. Maia situr nú eftir með sárt ennið og þarf að bíða enn lengur eftir sínu tækifæri.

UFC 209 fer fram í Las Vegas þann 4. mars og verður bardagi Woodley og Thompson aðalbardagi kvöldsins.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular