UFC 194 fer fram næsta laugardag. Við ætlum að hita vel upp fyrir bardagana á laugardaginn og kíkjum hér snögglega yfir upphitunarbardaga kvöldsins.
Á bardagakvöldinu eru 12 bardagar. Við munum birta sér grein fyrir alla fimm bardagana á aðalhluta bardagakvöldsins en hér förum við stuttlega yfir bardagana á undan.
Bantamvigt: Urijah Faber gegn Frankie Saenz
Frankie Saenz er ósigraður í þremur bardögum í UFC.
Faber tapaði síðast gegn Frankie Edgar. Það var fyrsta tap hans á ferlinum sem var ekki titilbardagi.
Faber er gríðarlega vinsæll bardagamaður
Saenz er í 13. sæti styrkleikalista UFC í bantamvigtinni
Síðasti bardaginn áður en aðalhluti bardagakvöldsins hefst
Þetta verður 41. bardagi Faber á ferlinum
Þetta verður 13. bardagi Saenz á ferlinum sem er þó bara einu ári yngri en hinn 36 ára Faber
Strávigt kvenna: Tecia Torres gegn Jocelyn Jones-Lybarger
Tecia Torres er í fimmta sæti á styrkleikalista UFC
Jocelyn Jones-Lybarger kemur í stað Michelle Waterson sem meiddist
Fyrsti bardagi Jones-Lybarger í UFC
Torres var í 20. seríu The Ultimate Fighter
Torres hefur sigrað báða bardagana sína í UFC
Veltivigt: Warlley Alves gegn Colby Covington
Tveir efnilegir í veltivigtinni sem mætast hér
Eru báðir 3-0 í UFC
Alves vann þriðju seríu TUF Brazil
Við sáum Covington síðast vinna Mike Pyle fremur óvænt
Léttvigt: Leonardo Santos gegn Kevin Lee
Santos er afar fær gólfglímumaður og er fjórfaldur heimsmeistari í BJJ
Kevin Lee þykir efnilegur bardagamaður og sigrað fjóra bardaga í röð
Lee er 23 ára á meðan Santos er 35 ára, reynslan gegn framtíðinni
Santos vann Georges St. Pierre á ADCC 2005
Lee hætti snemma í skóla til að einbeita sér að MMA
Léttvigt: Joe Proctor gegn Magomed Mustafaev
Rússinn Mustafaev hefur sigrað 11 bardaga í röð
Proctor æfir með Joe Lauzon
Mustafaev hefur aldrei farið allar þrjár loturnar
Proctor var í 15. seríu The Ultimate Fighter
Mustafaev hefur klárað sjö bardaga í fyrstu lotu
Léttvigt: John Madkessi gegn Yancy Medeiros
Þessi bardagi gæti auðveldlega orðið flugeldasýning
Madkessi barðist síðast við Donald Cerrone í maí. Cerrone kjálkabraut hann í 2. lotu.
Enginn af sex bardögum Medeiros í UFC hefur farið allar þrjár loturnar
Madkessi er með níu sigra eftir rothögg
Veltivigt: Court McGee gegn Márcio ‘Lyoto’ Alexandre Jr.
McGee vann 11. seríu The Ultimate Fighter
Alexandre er með 11 sigra, þar af eru tíu eftir rothögg
McGee hefur ekkert barist síðan í desember 2013
Alexandre hefur tapað báðum UFC bardögunum sínum
Öll töp McGee eru eftir dómaraákvörðun
Fyrsti bardagi kvöldsins hefst á miðnætti að íslenskum tíma. Íslendingar geta horft á alla bardagana á Fight Pass rás UFC.