Thursday, March 28, 2024
HomeErlentÚrslit UFC 206

Úrslit UFC 206

UFC 206 fór fram fyrr í kvöld í Toronto í Kanada. Anthony Pettis og Max Holloway mættust í aðalbardaga kvöldsins en hér má sjá úrslit kvöldsins.

Bardagakvöldið var afar góð skemmtun og mátti sjá mögnuð tilþrif. Cub Swanson og Doo Hoi Choi áttu einn allra besta bardaga ársins þegar þeir háðu þriggja lotu stríð.

Cerrone náði ótrúlegu rothöggi á Matt Brown í 3. lotu með hásparki og það sama gerði liðsfélagi hans, Lando Vannata í einum af fyrstu bardögum kvöldsins. Rothöggið hjá Vannata verður sennilega eitt af rothöggum ársins.

Aðalhluti bardagakvöldsins

Hentivigt (148 pund): Max Holloway sigraði Anthony Pettis með tæknilegu rothöggi eftir 4:50 í 3. lotu.
Veltivigt: Donald Cerrone sigraði Matt Brown með rothöggi (háspark) eftir 34 sekúndur í 3. lotu.
Fjaðurvigt: Cub Swanson sigraði Doo Ho Choi eftir dómaraákvörðun.
Millivigt: Kelvin Gastelum sigraði Tim Kennedy með tæknilegu rothöggi eftir 2:45 í 3. lotu.
Veltivigt: Emil Weber Meek sigraði Jordan Mein eftir dómaraákvörðun.

Upphitunarbardagar (Fox Sports 1)

Léttþungavigt: Misha Cirkunov sigraði Nikita Krylov með uppgjafartaki (guillotine choke) eftir 4:38 í 1. lotu.
Léttvigt: Olivier Aubin-Mercier sigraði Drew Dober með uppgjafartaki (rear-naked choke) eftir 2:57 í 2. lotu.
Hentivigt (117,5 pund): Viviane Pereira sigraði Valérie Létourneau eftir klofna dómaraákvörðun.
Bantamvigt: Matthew Lopez sigraði Mitch Gagnon eftir dómaraákvörðun.

Upphitunarbardagar (UFC Fight Pass)

Léttvigt: Lando Vannata sigraði John Makdessi með rothöggi (spinning wheel kick) eftir 1:40 í 1. lotu.
Hentivigt (158 pund): Rustam Khabilov sigraði Jason Saggo eftir dómaraákvörðun.
Fluguvigt: Dustin Ortiz sigraði Zach Makovsky eftir klofna dómaraákvörðun.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular