Thursday, April 25, 2024
HomeForsíðaUtan búrsins: Egill Øydvin Hjördísarson

Utan búrsins: Egill Øydvin Hjördísarson

Mynd: Páll Bergmann.
Mynd: Páll Bergmann.

Utan búrsins er liður þar sem við fáum að kynnast bardagafólkinu okkar aðeins betur. Egill Øydvin Hjördísarson keppir fyrir hönd Mjölnis og hefur sigrað alla þrjá MMA bardaga sína. Egill gaf okkur færi á að kynnast sér aðeins betur utan búrsins.

Egill hefur klárað tvo bardaga í fyrstu lotu – einn bardaga með hengingu og annan með rothöggi eftir sjö sekúndur. Egill keppir í millivigt (84 kg) en við áttum gott viðtal við hann fyrr á árinu þar sem hann talaði m.a. um slæma fortíð hans og heilbrigt líferni.

Uppáhalds matur? Steik með engu meðlæti, ekkert sem jafnast á við það

Uppáhalds veitingastaður? Lifandi Markaður

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Family Guy, hef örugglega horft á allar seríurnar 10 sinnum

Besta bíómynd sem gerð hefur verið? Lion King 1

Uppáhalds hljómsveit? Vinnie Paz

Hvaða íþrótt myndir þú aldrei æfa? Fótbolta

Hver eru áhugamál utan MMA og hvernig sinnirðu þeim? Ég hef haug af áhugamálum svo sam nám, skotveiðar, racer-hjólreiðar, hlaup og margt annað og er virkur að sinna áhugamálum með vinum þegar tími gefst

Hvernig finnst þér best að slaka á? Heima með kærustunni að horfa á góða mynd eða þátt

Uppáhalds dagurinn þinn í vikunni og af hverju? Mánudagar, alltaf gaman að sjá hvað vikan hefur í för með sér

Hvor myndi vinna í MMA bardaga, Bruce Lee eða Muhammad Ali og af hverju? Bruce Lee, hann myndi sparka Ali í tvennt

Ertu með tattú? Já er með 7 stykki.

Hvað leiddi þig út í bardagaíþróttir? Langaði að komast í betra form og læra að verja mig

Hvað fer í taugarnar á þér í fari fólks? Neikvæðni og þegar fólk segir „ég get það ekki“ því allir geta allt sem þeir vilja ef rétt hugarfar er til staðar

Vandræðalegasta augnablik ævi þinnar? Það er örugglega þegar ég kallaði kærustuna mína nafni fyrrverandi kærustunnar fyrir framan alla fjölskylduna hennar. Ég varð svo að útskýra fyrir öllum hver sú manneskja var..

Mynd: Páll Bergmann.
Mynd: Páll Bergmann.
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular