Friday, April 19, 2024
HomeErlentValentina Shevchenko fer niður í fluguvigt

Valentina Shevchenko fer niður í fluguvigt

Valentina Shevchenko hefur ákveðið að fara niður í fluguvigt og er komin með sinn fyrsta bardaga þar. Shevchenko mætir Priscila Cahoeira í febrúar.

Valentina Shevchenko hefur ekkert barist síðan hún tapaði titilbardaganum sínum í bantamvigt kvenna gegn Amöndu Nunes í haust. Núna hefur hún ákveðið að fara niður um flokk í nýstofnaða fluguvigt kvenna.

Andstæðingur hennar, Priscila Cahoeira, hefur unnið alla átta bardaga sína á ferlinum. Þetta verður hennar fyrsti bardagi í UFC en bardaginn fer fram á UFC bardagakvöldinu í Belem þann 3. febrúar. Cahoeira átti að vera á TUF Finale kvöldinu fyrr í desember en fékk ekki vegabréfsáritun í tæka tíð.

Shevchenko hefur oft þótt lítil í bantamvigtinni og verður áhugavert að sjá hana í fluguvigtinni. Shevchenko verður að teljast sem ansi líklegur áskorandi í þessum nýja þyngdarflokki í UFC.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular