Friday, April 19, 2024
HomeErlentYfirlýsing frá UFC: Georges St. Pierre er enn undir samningi

Yfirlýsing frá UFC: Georges St. Pierre er enn undir samningi

white_gsp1Georges St. Pierre sagði í gær að hann hefði rift samningi sínum við UFC. UFC er ekki á sama máli miðað við yfirlýsingu sem bardagasamtökin sendu frá sér.

„Georges St. Pierre er enn undir samningi við Zuffa, LLC [móðurfyrirtæki UFC]. Zuffa mun heiðra sinn hluta samningsins og ætlast til þess að St. Pierre geri hið sama,“ segir í yfirlýsingunni.

St. Pierre sagðist vera samningslaus í gær í The MMA Hour og kveðst vera laus allra mála eftir að hafa rift samningi sínum við UFC. St. Pierre átti í viðræðum við UFC en viðræðurnar sigldu í strand eftir að UFC var keypt af WME-IMG í júlí.

Georges St. Pierre vildi fá bardaga í UFC og setti eindaga á samningstilboð frá bardagasamtökunum en tilboðið fékk hann aldrei. Lögfræðingur hans rifti því samningnum en málinu er langt í frá lokið.

Miðað við þessa yfirlýsingu UFC er framundan löng barátta í réttarsölum og ætlar UFC ekki að sleppa Georges St. Pierre svo auðveldlega.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular