Thursday, March 28, 2024
HomeErlentConor skartaði NBA treyju og skaut þar með létt á Floyd

Conor skartaði NBA treyju og skaut þar með létt á Floyd

Smá rifrildi Conor McGregor á Instagram við NBA leikmanninn Draymond Green átti ögn dýpri rætur að rekja en í fyrstu var talið. Conor skartaði treyju C.J. Watson og skaut þar með á Floyd Mayweather og ofbeldissögu hans gegn konum.

Draymond Green, leikmaður Golden State Warriors, lét Conor heyra það á Instagram við neðangreinda mynd og sagði að hann og liðsfélagar sínir í Golden State styddu við bakið á Floyd Mayweather. Conor ætti þar af leiðandi ekki að vera í þeirra treyju.

We rocking with Floyd bro not you… take that off bruh @thenotoriousmma

A post shared by Draymond Green (@money23green) on

Conor var í Golden State treyju nr. 23 en það er sama númer og Green ber. Conor var þó ekki lengi að svara honum. „Þetta er C.J. Watson félagi. Ég hef ekki hugmynd um hver þú ert. Engin vanvirðing, haltu áfram að braska og ekki hætta í skólanum.“

„Veltu því fyrir þér, hvers vegna ég er í C.J. treyju þegar ég veit ekkert um og er skítsama um körfubolta. Ég drippla hausum af gólfinu, ekki boltum, þetta er enginn leikur hér stráksi.“

In a trash talk battle between Draymond and McGregor… who comes out on top?

A post shared by espn (@espn) on

Conor segist hafa verið að klæðast treyju C.J. Watson, nr. 23, sem spilaði fyrir Golden State frá 2007 til 2010 en Watson á ekki góðar minningar um Floyd Mayweather. Samkvæmt lögregluskýrslum átti Watson í samskiptum við Josie Harris, fyrrum kærustu Floyd Mayweather, árið 2010 sem leiddi til þess að Mayweather réðst á hana.

Mayweather játaði sök og var dæmdur í 90 daga fangelsi en sat af sér bara tvo mánuði. Mayweather á að hafa sagt við Harris að hann myndi drepa hana og manninn sem hún hafði verið í slagtogi við.

Það kom á óvart að Conor minntist aldrei á heimilisofbeldi Floyd Mayweather á fjölmiðlatúrnum á dögunum. Þetta er í raun í fyrsta sinn sem hann minnist á eða vísar í þá sögu Floyd. Draymond Green hafði greinilega ekki hugmynd um söguna á milli Floyd og C.J. Watson.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular