Saturday, April 20, 2024
HomeErlentEinhenti bardagamaðurinn Nick Newell fær tækifæri hjá Dana White

Einhenti bardagamaðurinn Nick Newell fær tækifæri hjá Dana White

Nick NewellEinhenti bardagamaðurinn Nick Newell fær loksins tækifæri hjá Dana White. Newell verður í Tuesday Night Contender Series í sumar en með góðri frammistöðu þar ætti hann að fá samning hjá UFC.

Nick Newell er 14-1 sem atvinnumaður og átti góðu gengi að fagna í WSOF þar sem eina tap ferilsins kom gegn Justin Gaethje. Newell hætti í MMA árið 2015 en snéri aftur í búrið í mars. Draumurinn hans er að komast í UFC og er hann nú einu skrefi nær því.

Newell fæddist einhentur en á Newell vantar neðri hlutann af vinstri höndinni og endar vinstri höndin rétt fyrir neðan olnboga. Hann hefur aldrei látið það stoppa sig og var í ólympískri glímu frá unga aldri. Í dag er hann afar fær glímumaður og er m.a. svart belti í brasilísku jiu-jitsu.

Hann á þó erfitt með að verjast árásum á vinstri hlið sína og hefur Dana White verið hikandi að semja við hann hingað til. Hann fær þó tækifæri í sumar í Dana White’s Tuesday Night Contender Series. Í fyrra fengum við skemmtilega bardagamenn á borð við Sean O’Malley í gegnum seríuna og verður áhugavert að sjá hvernig Newell mun standa sig þar.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular