Wednesday, April 24, 2024
HomeForsíðaGunnar ekki lengur á topp 15 á styrkleikalista UFC

Gunnar ekki lengur á topp 15 á styrkleikalista UFC

Gunnar Nelson
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Gunnar Nelson er dottinn út af styrkleikalista UFC í veltivigtinni. Gunnar hefur verið í 14.-15. sæti á undanförnum vikum en er nú dottinn alfarið af listanum.

Hector Lombard hefur lokið eins árs keppnisbanni sínu og er kominn aftur á styrkleikalistann. Lombard var mjög ofarlega á listanum áður en hann féll á lyfjaprófi í janúar 2014. Lombard sigraði síðast Josh Burkman í janúar 2014 og þykir þetta kannski dálítið skrítið hann komist aftur á listann þrátt fyrir að hafa ekki keppt eftir að banninu lauk.

Lombard og Albert Tumenov skipa báðir 14. sæti listans og er því enginn í 15. sæti eins og sjá má hér.

rankings

Gunnar hefur verið á topp 15 listanum síðan hann sigraði Omari Akhmedov í mars 2014. Gunnar var í 11. sæti áður en hann tapaði fyrir Demian Maia en eftir tapið féll hann niður í 14. sæti. Gunnar er ekki kominn með næsta bardaga og mun að öllum líkindum komast aftur á topp 15 með sigri í næsta bardaga.

Styrkleikalistinn er samansettur af fjölmiðlamönnum og kemur nýr listi u.þ.b. 36 tímum eftir hvern viðburð UFC. Næsta UFC bardagakvöld er á laugardaginn og gæti Gunnar þess vegna komist aftur á listann þá, þrátt fyrir að hvorki Tumenov né Lombard keppi um helgina.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular