Tuesday, April 23, 2024
HomeForsíðaGunnar Nelson náði tilsettri þyngd

Gunnar Nelson náði tilsettri þyngd

Gunnar Nelson var að vigta sig inn rétt í þessu. Hann er búinn að ná vigt og var 77 kg á vigtinni í morgun.

Gunnar tók létt bað í morgun og var ekki í erfiðleikum með þetta frekar en vanalega. Hann var akkúrat 170 pund eða um 77 kg þegar hann steig á vigtina. Bardaginn fer fram í 170 punda veltivigt en leyfilegt er að vera einu pundi yfir nema þegar um titilbardaga er að ræða.

Sjá einnig: Santiago Ponzinibbio náði tilsettri þyngd

Andstæðingur Gunnars, Santiago Ponzinibbio kom seinna en Gunnar en hann var 171 pund á vigtinni. Sjónvarpsvigtunin fer svo fram kl 16 í dag.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular