Home Forsíða Gunnar Nelson aftur upp um eitt sæti á styrkleikalistanum

Gunnar Nelson aftur upp um eitt sæti á styrkleikalistanum

0

Gunnar Nelson UFC RotterdamGunnar Nelson fer upp um eitt sæti á nýjasta styrkleikalista UFC. Tarec Saffiedine datt niður um nokkur sæti og færðist Gunnar því upp.

Gunnar situr nú í 11. sæti styrkleikalista UFC í veltivigtinni. Listinn er uppfærður u.þ.b. 36 klukkustundum eftir hvert bardagakvöld en hann er samansettur af fjölmiðlamönnum víðs vegar um heiminn. Á listanum raða fjölmiðlamenn 15 efstu áskorendunum á eftir meistaranum í hverjum flokki fyrir sig.

Eftir að Rick Story sigraði Tarec Saffiedine eftir dómaraákvörðun um helgina var smá breyting í veltivigtinni. Fyrir bardagann var Saffiedine í 10. sæti styrkleikalistans og Story í því 11. Eftir tap Belgans fellur hann niður um þrjú sæti og tekur Rick Story hans stað í 10. sæti listans. Gunnar og Kelvin Gastelum fara því upp um eitt sæti líkt og Story.

NO COMMENTS

Leave a ReplyCancel reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version