Friday, March 29, 2024
HomeErlentJohny Hendricks mætir Paulo Borrachinha á UFC 217

Johny Hendricks mætir Paulo Borrachinha á UFC 217

Ævintýri Johny Hendricks í millivigtinni heldur áfram þann 4. nóvember í New York. Hendricks mætir þá Paulo Borrachinha á UFC 217 í Madison Square Garden.

Ferill fyrrum veltivigtarmeistarans Johny Hendricks er í frjálsu falli en hann hefur tapað fimm af síðust sjö bardögum sínum. Hann færði sig upp í millivigt á þessu ári og komst aftur á sigurbraut með sigri á Hector Lombard.

Allt gekk þó á afturfótunum þegar hann mætti Tim Boetsch í júní. Hendricks mistókst að ná millivigtartakmarkinu og tapaði eftir rothögg í 2. lotu.

Hann mætir Paulo Borrachinha í nóvember en Borrachinha er 10-0 á MMA ferlinum og hefur klárað báða bardaga sína í UFC. Nú verður Hendricks notaður til að byggja upp nafn Borrachinha og verður áhugavert að sjá hvar sá brasilíski stendur í millivigtinni á þessu stigi ferilsins.

Þetta er fyrsti bardaginn sem staðfestur hefur verið á UFC 217 en frá þessu greinir brasilíski vefurinn Combate. Þetta verður önnur heimsókn UFC í Madison Square Garden og má búast við mikilli bardagaveislu þann 4. nóvember.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular