Fremsti hnefaleikamaður landsins, Kolbeinn „The Icebear“ Kristinsson, keppti sinn nítjánda bardaga í atvinnumennskunni í Finnlandi í fyrrakvöld. Um var að ræða 8 lotu bardaga en það tók Kolbein aðeins tvær lotur að afgreiða andstæðinginn sinn.
Íslenski Ísbjörninn mætti Venesúelanum Pedro Martinez en það tók okkar mann einungis 2 lotur til að afgreiða Martinez. Bardaginn byrjaði með miklum krafti og var greinilegt að Martinez ætlaði sér sigur í Finnlandi. Kolbeini tókst að taka yfir fyrstu lotuna með því að miða mikið í skrokkinn á Martinez og sást strax á honum. Kolbeinn var kominn með blóðbragð í muninn þegar önnur lotan hófst og fór sömu leið. Eftir rétt rúmlega eina mínútu í annarri lotu smell hitti Kolbeinn með 1 – 10 fléttu, þ.e. beina stungu með vinstri hendi til að setja upp krók í skrokkinn á Martinez með hægri. Það heyrðist vel á Martinez að hann var sárþjáður og sagði dómarinn eftir bardagann að hann hefði heyrt „eitthvað poppa“. Pedro féll í gólfið og taldi dómarinn yfir honum þar til Martinez gaf skýr skilaboð um að hann vildi halda áfram. Kolbeinn lék sama leik aftur og féll Martinez aftur í gólfið og veifaði dómarinn bardagann af. Martinez lá í gólfinu sárþjáður í dágóðan tíma en tókst að lokum að standa upp á meðan úrslitin voru tilkynnt. Hann fór svo í ástandsskoðun eftir bardagann og komust menn að þeirri niðurstöðu að hann hafði rifbeinsbrotnað.
Kolbeinn hafði leikið sama leik á æfingum fyrir bardagann og hlaut einn æfingafélagana hans sömu örlög og Martinez rétt fyrir bardagann.
Pedro Martinez er virkilega reynslumikill andstæðingur. Hann er fyrrum landsmeistari Venesúela, er með yfir 130 bardaga á ferilskránni í ólympískum hnefaleikum og hefur unnið náið með landsliðinu um árabil. Sterkur sigur á Pedro er því glæsileg fjöður í hattinn hans Kolla.
Kolbeinn er enn ósigraður sem atvinnumaður í hnefaleikum og heldur áfram að draga að sér mikla athygli á heimsvísu. Eftir að hafa unnið WBF heimsmeistaratitilinn í Þýskalandi fyrr á árinu fékk Kolbeinn nokkur flott bardagatilboð þar sem hann var hugsaður sem ákjósanlegur andstæðingur fyrir toppbardagamenn í heiminum. Eftir bardagann gegn Martinez virðist tónninn hafa breyst og sjá menn sér núna tækifæri á borðinu og vilja festa Kolbein á samning og færa hann yfir á stóra sviðið í Evrópu sem promotional efni.
