Thursday, March 28, 2024
HomeErlentMayweather vs. McGregor Embedded: Floyd með 14 karata gull í gómnum

Mayweather vs. McGregor Embedded: Floyd með 14 karata gull í gómnum

Nýjasti Embedded þátturinn fyrir boxbardaga Floyd Mayweather og Conor McGregor var að lenda. Í þáttunum fáum við að sjá á bakvið tjöldin fyrir þennan risa boxbardaga.

Í 2. þættinum sjáum við Floyd sýna nokkra sérhannaða góma. Í einum þeirra er 100 dollara seðill en í öðrum þeirra er 14 karata gull í gómnum.

Sjá einnig: Mayweather vs. McGregor Embedded: Floyd á Burger King og Conor í Laser Tag

Conor hefur fengið boxdómarann Joe Cortez til að aðstoða sig við undirbúninginn fyrir bardagann. Cortez er afar reynslumikill dómari og segir hann að það sé mikill munur á Conor núna miðað við fyrstu æfingarnar sem hann sá.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular