Friday, April 19, 2024
HomeForsíðaMjölnismenn keppa í Skotlandi í september

Mjölnismenn keppa í Skotlandi í september

Mjölnismenn munu berjast í Skotlandi þann 16. september. Þar munu þeir stíga í búrið á Headhunters bardagakvöldinu gegn skoskum bardagamönnum. Sem stendur eru fjórir Íslendingar með MMA bardaga á kvöldinu en fleiri gætu mögulega bæst við.

Bardagarnir fara fram í Grangemouth og eru allir Íslendingarnir að berjast áhugamannabardaga.

Bjartur Guðlaugsson (2-2) mætir Hayden Murray (4-1) í fjaðurvigt. Bjartur barðist síðast í maí þegar hann sigraði Danann Mikkel Thomsen eftir dómaraákvörðun í Færeyjum.

Björn Lúkas Haraldsson (1-0) átti frábæra frumraun í maí þegar hann kláraði Zabi Saeed með tæknilegu rothöggi í 1. lotu. Nú er hann kominn með sinn annan bardaga og mætir Georgio Christofi (1-0) í veltivigt.

Mynd: Sóllilja Baltasardóttir.

Tveir Íslendingar munu berjast sinn fyrsta MMA bardaga á kvöldinu. Sigurjón Rúnar Vikarsson mætir Ross Mcintosh í veltivigt en Skotinn er líka að fara að berjast sinn fyrsta MMA bardaga (samkvæmt Tapology). Þá mun Bjarki Eyþórsson mæta Niall Campbell en þetta verður einnig fyrsti MMA bardagi beggja.

Þeir Bjarki Ómarsson og Hrólfur Ólafsson áttu einnig að keppa á kvöldinu en hafa báðir misst andstæðingana sína. Verið er að leita að nýjum andstæðingum fyrir þá og gæti þeir því bæst við.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular