Tuesday, April 16, 2024
HomeErlentMynd: Conor skýtur á Holloway á Instagram en fjaðurvigtarmeistarinn svaraði vel fyrir...

Mynd: Conor skýtur á Holloway á Instagram en fjaðurvigtarmeistarinn svaraði vel fyrir sig

Samfélagsmiðlarnir hjá Conor McGregor vekja jafnan athygli. Um helgina birti hann gamla mynd úr bardaga hjá sér en bjóst kannski ekki við að andstæðingurinn myndi svara svona vel fyrir sig.

Conor McGregor mætti Max Holloway í ágúst 2013. Conor sigraði eftir dómaraákvörðun en síðan þá hefur Holloway sigrað 12 bardaga í röð og er ríkjandi fjaðurvigtarmeistari UFC.

Um helgina birtir Conor McGregor þessa mynd úr bardaga þeirra:

When there is no referee to save you.

A post shared by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on

Holloway svaraði þó vel fyrir sig og birti mynd úr bardaga Conor og Floyd Mayweather í fyrra. Þar sigraði Floyd eftir tæknilegt rothögg eftir að dómarinn hafði stöðvað bardagann í 10. lotu.

When there is

A post shared by Max Holloway (@blessedmma) on

Holloway komst í fréttirnar um helgina en hann neyddist til að draga sig úr bardaga sínum gegn Frankie Edgar í mars. Þetta er í fyrsta sinn sem hann hefur þurft að hætta við bardaga í UFC.

Conor McGregor er enn léttvigtarmeistari UFC en ekki er vitað hvort eða hvenær hann berjist aftur.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular