Header_Ad
Home Erlent Myndband: Diaz og Nurmagomedov héldu áfram að slást eftir WSOF

Myndband: Diaz og Nurmagomedov héldu áfram að slást eftir WSOF

0

Eins og við greindum frá í morgun brutust út slagsmál á World Series of Fighting viðburðinum í gærkvöldi milli Diaz bræðranna og Khabib Nurmagomedov. Kapparnir héldu látunum áfram eftir viðburðinn.

Upphaf atviksins má rekja til þess er Nate Diaz og Khabib Nurmagomedov slógust í áhorfendasalnum í höllinni. Nick Diaz, eldri bróðir Nate, kastaði þá bjór í Nurmagomedov.

Nú hafa fleiri myndbönd birst á netinu þar sem slagsmálin héldu áfram eftir að viðburðinum lauk. Þessi hegðun Nurmagomedov og Diaz bræðranna er til skammar og fá kapparnir líklegast sekt (eða verra) frá UFC. Diaz bræðurnir hafa nú verið settir í bann frá viðburðum WSOF eftir lætin.

Hér má sjá fleiri myndbönd af látunum.

Atvikið í höllinni:

NO COMMENTS

LEAVE A REPLY

Turn on JavaScript to leave a comment.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Exit mobile version