Thursday, March 28, 2024
HomeForsíðaSunna Rannveig berst 25. mars í Invicta

Sunna Rannveig berst 25. mars í Invicta

Sunna Rannveig Davíðsdóttir
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Sunna Rannveig Davíðsdóttir er komin með sinn næsta bardaga í Invicta FC. Sunna mætir Mallory Martin þann 25. mars.

Sunna Rannveig skrifaði undir samninginn fyrr í kvöld og hefur Invicta tilkynnt þetta nú þegar. Bardaginn fer fram á Invicta FC 22 í Kansas í Bandaríkjunum rétt eins og síðast.

Andstæðingur hennar, Mallory Martin, er 1-0 sem atvinnumaður í MMA rétt eins og Sunna. Þetta verður frumraun Martin í Invicta en hún er bandarísk og æfir hjá Zingano BJJ. Samkvæmt Sherdog var hún með þrjá áhugamannabardaga, allt sigrar, áður en hún tók skrefið í atvinnumennskuna. Það má þó vera að bardagarnir séu fleiri en ekki skráðir í Sherdog gagnabankanum. Martin barðist síðast í desember þegar hún sigraði andstæðing sinn eftir dómaraákvörðun.

Sjá einnig: Sunna Rannveig – Himinlifandi með að vera á leiðinni aftur í búrið

Sunna Rannveig barðist sinn fyrsta bardaga í Invicta í september þegar hún sigraði Ashley Greenway eftir dómaraákvörðun. Það var fyrsti atvinnubardaginn hennar og sýndi Sunna að hún ætti vel heima í Invicta. Í lok síðasta árs var Sunna svo kjörin nýliði ársins í bardagasamtökunum.

Í aðalbardaga kvöldsins mætast þær Tonya Evinger og Yana Kunitskaya um bantamvigtartitilinn. Þær Evinger og Kunitskaya mættust í nóvember en bardaginn endaði með umdeildum hætti svo þær munu berjast aftur.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular