Thursday, April 18, 2024
HomeErlentÞrjú ár liðin frá fyrsta bardaga Conor McGregor í UFC

Þrjú ár liðin frá fyrsta bardaga Conor McGregor í UFC

conor-mcgregor-2Það var á þessum degi fyrir þremur árum síðan sem Conor McGregor háði frumraun sína í UFC. Þá mætti hann Marcus Brimage í Svíþjóð og var stjarna fædd þetta kvöld.

Það hefur ansi mikið vatn runnið til sjávar frá því við sáum Conor McGregor fyrst í UFC. Þá mætti hann Marcus Brimage á UFC on Fuel TV: Mousasi vs. Latifi þann 6. apríl 2013. Í dag er hann stærsta stjarnan í íþróttinni, umdeildur, vinsæll og talsvert ríkari.

Þegar Conor McGregor gekk leið sína að búrinu þann dag var hann ber að ofan með írska fánann á bakinu. Hann var ekki einu sinni með styrktaraðila og var aðeins annar Írinn í sögu UFC til að keppa í UFC.

McGregor hafði áður verið fjaður- og léttvigtarmeistari Cage Warriors bardagasamtakanna áður en hann keppti í UFC. Hann var kynntur sem æfingafélagi Gunnars Nelson enda var SBG í Dublin ekki með fleiri UFC bardagamenn á þeim tíma.

McGregor vakti ágætis athygli fyrir bardagann og reif kjaft í The MMA Hour, étandi bláber, nokkrum vikum fyrir bardagann. Brimage var ekki sáttur með ummæli Írans og ætlaði að loka þverrifunni á honum með góðu rothöggi.

Það tókst ekki enda fór McGregor létt með Marcus Brimage og kláraði hann á 67 sekúndum. Brimage er ekki sá eini sem hefur látið McGregor æsa sig upp enda hefur það verið eitt af hans einkennismerkjum í UFC.

Fyrir bardagann var McGregor á atvinnuleysisbótum en tilkynnti á blaðamannafundinum eftir bardagann að nú væri hann kominn með vinnu og þyrfti ekki á bótunum að halda. „60 Gs Baby“ eru ein af hans mörgu frægu ummælum enda fékk hann góðan bónus fyrir frammistöðu sína í búrinu.

Fyrir bardagann birti The Irish Mirror eina stutta grein um bardaga Conor McGregor á meðan aðrir miðlar (fyrir utan MMA vefsíður eins og SevereMMA) skrifuðu ekki orð um bardagann. Í dag má McGregor ekki birta eina mynd á Instagram án þess að það sé í öllum helstu miðlum Írlands.

Restina af sögunni þekkja allir. Það er eiginlega ótrúlegt hversu stór stjarna McGregor er í dag en það eru ekki nema þrjú ár síðan hann var óþekktur Íri á atvinnuleysisbótum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular