UFC Fight Night: Rodriguez vs. Penn bardagakvöldið fór fram í nótt í Phoenix, Arizona. Í aðalbardaga kvöldsins mættust þeir Yair Rodriguez og BJ Penn en hér má sjá öll úrslit kvöldsins.
Aðalhluti bardagakvöldsins:
Fjaðurvigt: Yair Rodriguez sigraði BJ Penn með tæknilegu rothöggi eftir 24 sekúndur í 2. lotu. Léttvigt: Joe Lauzon sigraði Marcin Held eftir klofna dómaraákvörðun. Veltivigt: Ben Saunders sigraði Court McGee eftir dómaraákvörðun. Fluguvigt: Sergio Pettis sigraði John Moraga eftir dómaraákvörðun.
Upphitunarbardagar (Fox Sports 1)
Léttivigt: Drakkar Klose sigraði Devin Powell eftir dómaraákvörðun Bantamvigt: Augusto Mendes sigraði Frankie Saenz eftir dómaraákvörðun. Þungavigt: Oleksiy Oliynik sigraði Viktor Pesta með uppgjafartaki (Ezekiel henging) eftir 2:57 í 1. lotu. Léttvigt: Tony Martin sigraði Alex White eftir dómaraákvörðun.
Upphitunarbardagar (UFC Fight Pass)
Strávigt kvenna: Nina Ansaroff sigraði Jocelyn Jones-Lybarger með uppgjafartaki (rear-naked choke) eftir 3:39 í 3. lotu. Þungavigt: Walt Harris sigraði Chase Sherman með rothöggi eftir 2:41 í 2. lotu. Léttþungavigt: Joachim Christensen sigraði Bojan Mihaljović með tæknilegu rothöggi eftir 2:05 í 3. lotu. Þungavigt: Cyril Asker sigraði Dmitri Smoliakov með tæknilegu rothöggi eftir 2:41 í 1. lotu.