Það hefur verið vinsælt hjá meisturum í UFC að vilja berjast um titil í þyngdarflokki fyrir ofan eða neðan sinn og eru nú nokkrir meistarar sem vilja fá tækifæri á því að vera handhafar tveggja titla á sama tíma. Alex Pereira vill fara upp í þungavigt eða niður í millivigt og taka titil þar ásamt því að vera með léttþungavigtarbeltið. Ilia Topuria vill fara upp og berjast við Islam Makachev um léttvigtarbeltið, Islam vill þá berjast við Belal Muhammad um veltervigtarbeltið og Belal vill berjast við Dricus Du Plessis um millivigtarbeltið. Það virðist ekki skipta öllu máli hversu margar titlvarnir bardagamenn eru með en það var eitt sinn reglan að menn þyrftu að hafa tæmt símavigt áður en þeir fengu að hoppa beint í titilbardaga við meistara í annarri vigt.
Belal hefur sett fram hvernig hann telur að bardagi milli sín og Du Plessis myndi spilast út en Belal er sigurviss. Belal segir að hann myndi koma inn í fyrstu lotu og slá Du Plessis með stungu og beinni hægri sem Du Plessis myndi svara með yfirhandar hægri sem Belal myndi færa sig undan og taka Du Plessis niður í gólfið í kjölfarið og berja hann í gólfinu út lotuna. Í annarri lotu sér Belal fyrir sér að hann myndi byrja lotuna á flúgandi hné sem myndi þvinga Du Plessis til að verja sig og við það myndi Belal fella Du Plessis í gólfið og hlæja að honum. Du Plessis myndi þá standa upp og vera orðinn pirraður reyna að slá Belal sem myndi ekki hitta og við það reyna fellu sem Belal sér fyrir sér að verja auðveldlega. Í þriðju lotu sér Belal að Du Plessis verður orðinn mjög örvæntingarfullur og reynir árásir þar sem hann snýr sér annaðhvort til að sparka eða slá og Belal myndi tímasetja það rétt og ná bakinu á Du Plessis og svæfa hann með uppgjafartaki.
Það verður að viðurkennast að þetta er nokkur bartsýni í Belal en hann ætti að huga að sínum eigin þyngdarflokki en hann þurfti að hætta við bardaga gegn Shavkat Rakhmonov nýlega en Belal er veltervigtarmeistari UFC og hefur aldrei varið belti sitt. Þá er Belal einn óvinsælasti meistarinn í manna minnum og því ólíklegt að Dana White leyfi honum að berjast um millivigtartitilinn án þess að verja veltervigtarbelti sitt fyrir þeirri úlfahjörð sem bíður eftir tækifærinu að berjast við meistarann.
